Við höfum lengi spáð í að útfæra vinsælu 5 vikna dagnámskeiðin okkar fyrir kvöldhópa. Eftirspurnin eftir hraðnámskeiðum í íslensku fyrir innflytjendur á kvöldin hefur alltaf verið til staðar en áhuginn á þeim jókst umtalsvert fyrir áramót og því slógum við til og skipulögðum eitt slíkt. Dominika Majewska fékk það hlutverk að kenna fyrsta kvöldhraðnámskeið Retor en námskeiðinu lauk í síðustu viku. Hraðnámskeiðin eru 60 kennslustundir eins og öll okkar íslenskunámskeið.
Hópurinn var þétt skipaður og stóð sig gríðarlega vel, nokkrir af nemendum hennar voru til í létta mynd og gáfu henni svo þessa flottu gjafakörfu í lok námskeiðsins. Við óskum henni og nemendum hennar til hamingju og hlökkum til að halda áfram að þróa 5 vikna kvöldhraðnámskeiðin okkar í takt við þarfir og óskir nemenda. Kvöldhraðnámskeiðin eru sannarlega komin til að vera.
Við hvetjum forvitna til að hafa samband við okkur á facebook síðu Retor eða með tölvupósti á retor@retor.is