FYRIRTÆKJALAUSNIR

Hjalti Ómarsson

Framkvæmdastjóri
hjalti@retor.is
Beinn sími: 662-3730

Markmið fyrirtækjalausna Retor Fræðslu er að þjónusta atvinnulífið. Við  aðstoðum íslensk fyrirtæki m.a. við að innleiða skýra stefnu um tilgang og notkun íslenskunnar sem samskiptamáta á vinnustöðum með mörg tungumál. Við setjum okkur einnig markmið um að skapa heilnæma nálgun og umræðu um stöðu tungumálsins í þeim tilgangi að bæta almenn samskipti, auka virðingu fyrir ólíkum uppruna ásamt því að stuðla að jákvæðri og sterkri vinnustaðamenningu.

Íslenskukennsla fyrir erlent starfsfólk er mikilvægur hluti af því ferli og það er sú þjónusta sem við sérhæfum okkur í að veita, ásamt ýmiss konar framhaldsfræðslu sem við bjóðum uppá og þróum í samstarfi við vinnustaði  eftir hentugleika. Þjónustan okkar er fjölbreytt og nálgun okkar sveigjanleg.

Hafið samband við Hjalta fyrir frekari upplýsingar um fyrirtækjalausnir Retor.

hjalti@retor.is |519 4800